Jonny - Billy - Jolly

Jonny Lee Miller

Billy Bob Thornt­on

„Jolly“ Brad Pitt

...


mbl.is Jolie sækir um skilnað frá Pitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðar?

Heitir Halldór „Auðar“? Er hann ekki fremur Auðar son?


mbl.is Keppir við ríkið um opnun bókhalds
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjónað undir hinn illa keisara

Sykurfell greiddi ekkert fyrir þessa auglýsingu.


mbl.is Facebook: Símanúmerið að deyja út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkasti maður JAPANS, ekki Kína

Stofnandi Uniqlo er talinn ríkasti maður Japans, ekki Kína. Segir nafnið Janaí Tadasjí blaðamanni ekkert?


mbl.is Ríkasti maður Kína er pollrólegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta rétt eignarfall fleirtölu af orðinu stjarna?

Nei, rétt er að þetta yrði fyrsta fimm stjarna hótelið á Íslandi. („Stjörnur, um stjörnur, frá stjörnum, til stjarna.“ Við horfum ekki *„til stjörnunna“, heldur „til stjarnanna“.)

Á sama hátt er talað um 10 króna pening (ekki „10 krónu pening“) og 18 holna golfvöll (ekki „18 holu golfvöll“).


mbl.is Fyrsta 5 stjörnu hótelið við Bláa lónið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

vegna HOLNANNA

vegna HOLNANNA, vegna HOLNANNA, vegna HOLNANNA, vegna HOLNANNA, vegna HOLNANNA, vegna HOLNANNA, vegna HOLNANNA, vegna HOLNANNA, vegna HOLNANNA, vegna HOLNANNA...


mbl.is 200 tjón vegna holanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tengdu!

Vér höldum áfram að misþyrma málinu. Í fyrstu setningu fréttarinnar er orðið hneykslismál í þolfalli og lýsingarorðið sem fylgir því verður því að vera í sama falli:

Dómsmálaráðherra ... sagði af sér ... í tengslum við hneykslis­mál tengt þekkt­um eit­ur­lyfja­barón.“


mbl.is Dómsmálaráðherra Hollands segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vopnaða bréfbera!

Nauðsynlegt er að búa bréfbera landsins hentugum vopnum til að fella mannbíta sem leynast við heimahús.


mbl.is Bréfberi blóðbitinn tíu sinnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þeim vantaði?

Úr fréttinni: „kaupa meira en þeim vantaði“

Et tu Moggi?


mbl.is 30% matvæla fer í ruslið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enga tilfinningu fyrir tölum

hefur blaðamaður mbl.is. 1tn euros á ensku eru ekki „1 trilljón evra (milljón billjónir)“ enda myndi það samsvara milljörðum evra á hvert mannsbarn í álfunni. Trillion á ensku er billjón á íslenzku svo að skattsvikin eru áætluð ein billjón evra eða sem svarar 160 billjónum króna, um 320.000 kr. á hvern íbúa í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
mbl.is Andorra leggur á tekjuskatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...fundust látin á heimili SÍNU

 
mbl.is Rifrildi talið hafa kostað þau lífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haram og halal snúið á hvolf

Öfugt við það sem segir í fréttinni merkir haram „syndsamlegt“eða „bannað“ og halal „samkvæmt lögmálinu“ eða „leyft“.
mbl.is Átök vegna Harlem Shake í Túnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burt með hann þennan!

Burt með þennan nýja tíþúsundkall!

Burt með fimmþúsundkallinn!

Burt með þúsundkallinn!

Burt með fimmhundruðkallinn!

Burt með hundraðkallinn!

Burt með fimmtíukallinn!

Burt með tíkallinn!

Burt með fimmkallinn!

Og burt með krónuna...

(Tvöþúsundkallinn verði aðeins gjaldgengur við kaup á myndverkum.)


mbl.is Lóan kemur með 10 þúsund króna seðil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki herlögreglan

Rétt er að Renault Alpine var á sínum tíma notaður við vegaeftirlit í Frakklandi, en það eftirlit er í höndum lögreglusveitar sem nefnist Gendarmerie. Sú sveit sinnir einnig verkefnum herlögreglu (police militaire) en bifreiðin var ekki notuð á þeim vettvangi.
mbl.is Renault Alpine sportbíllinn snýr aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á íslenzku heitir þetta...

„sem er helmingi eldri en hún“. Þannig frá fornu fari. 
mbl.is 15 ára stakk af með kennaranum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjögurra stjarna, ekki „stjörnu“

Eignarfall fleirtölu af orðinu stjarna er „stjarna“, ekki „stjörnu“. Til að mynda getum við horft til stjarnanna (ekki „til stjörnunna“). Þess vegna á að segja að Hótel Loftleiðir sé „fjögurra stjarna hótel“.

(Á sama hátt er rétt að tala um 18 holna golfvöll, ekki „18 holu“.)


mbl.is Miklar breytingar á Hótel Loftleiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Fjóra og hálfan milljarð“, ekki „fjóran og hálfan“

Orðmyndin „fjóran“ er brenglun. Þegar bankinn greiðir „fjóra milljarða króna“ og til viðbótar við það „hálfan milljarð króna“ greiðir hann samtals „fjóra og hálfan milljarð króna“, ekki „fjóran og hálfan“.
mbl.is Kröfu Ares-banka hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr espi, ekki ösp?

Líklega er réttara að segja að hurðin sé „úr espi“:

Björk, bók, eik, grön, ölur og ösp eru tré. Birki, beyki, eiki, greni, elri og espi eru samsvarandi viðartegundir.


mbl.is 5.100 ára gömul hurð finnst í Sviss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugleysi?

Starfsfólk Seðlabanka Íslands þorði ekki að birta þær hagspár sem töldust réttastar. Þorði ekki!

Var það á sama hátt hugleysi sem olli því að tiltækum ráðum var ekki beitt til að halda aftur af útþenslu bankakerfisins (en ekki ónóg fagþekking eða almennur vanvitaháttur)? Það væri ömurleg niðurstaða en afskaplega skiljanleg skýring.


Plebbaskapur Íslendinga

Þetta bloggar enginn um. Vitleysingar.
mbl.is Fjölga fólki í kreppunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband